Skilmálar

Skilmálar

Allar vörur sem til sölu eru í þessari vefverslun eru meðhöndlaðar með frostþurrkun. Það þýðir að allur vökvi hefur verið fjarlægður úr vörunni og sykurinn gæti hafa þanist út (sérstaklega í hlaupi og karamellum). Áferðin getur því að mörgu leyti verið ólík áferð upprunalegu vörunnar. 

Fyrirtækið

Allar vörur á vefsíðunni eru framleiddar af Frostþurrkun ehf (Iceland Freeze Dry), Vesturbakka 5, 815 Þorlákshöfn. Vsk.nr. er 14241. 
Hægt er að hafa samband við í gegnum netfangið freezedry@freezedry.is eða fozz@fozz.is

Afhending vöru

Allar pantanir eru afgreiddar í síðasta lagi á næstu þremur sólarhringum eftir pöntun en þó er reynt að afgreiða allar pantanir samdægurs. Sé varan ekki til á lager verður haft samband og tilkynnt um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Í boði er að hætta við kaup eða fá staðkvæmdarvöru í stað vörunnar sem ekki er til.

Af öllum pöntunum sem dreift er af póstþjónustu gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar þeirra um afhendingu vörunnar. Frostþurrkun ehf ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef að vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að hún er send til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda.

Verð á vöru

Öll verð í vefverslun eru með inniföldum virðisaukaskatti en sendingarkostnaður bætist við áður en greiðsla fer fram.

Að skila vöru

Veittur er 14 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn því að framvísað sé sölureikningi sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu lagi og í sínum upprunalegu óskemmdu umbúðum þegar henni er skilað. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar.

Gölluð vara

Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingarkostnað sem um ræðir eða endurgreiðum ef þess er krafist. Að öðru leyti vísast til laga um neytendakaup nr. 48/2003 og laga um neytendasamninga. 

Trúnaður

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila. 

Lög og varnarþing

Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Suðurlands

Frostþurrkun ehf fer eftir lögum nr. 77/2000 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga.

 

Back to blog