Iceland Freeze Dry

Við framleiðum fyrsta flokks frostþurrkaðar vörur úr fjölbreyttum hráefnum

1 of 3

Hvernig nota ég frostþurrkaðar vörur?

Verðmætasköpun í stað sóunar

Sprotafyrirtækið Frostþurrkun ehf (Iceland Freeze Dry) er partur af hringrásarklasa fyrirtækja sem hugsar í lausnum þegar kemur að umhverfismálum.

Hjá Frostþurrkun leggjum við höfuðáherslu á fullnýtingu vannýttra hráefna og hliðarafurða með það að markmiði að draga úr matarsóun og lækka kolefnisfótspor íslenskrar matvælaframleiðslu.

Við viljum efla hringrásarhagkerfi íslenskrar matvælaframleiðslu og gera frostþurrkunar-aðferðina að farvegi fyrir innlend og innflutt matvæli sem að öðrum kosti yrði að farga. Þannig viljum við snúa sóun í verðmætasköpun.

Allar ávaxta- og grænmetisafurðirnar sem við framleiðum eru unnar úr hráefnum sem teljast ekki frambærilegar (t.d. vegna lögunar eða stærðar) eða hráefna sem hefði annars þurft að farga.
Frostþurrkun ehf tekur við ferskum ávöxtum og grænmeti frá innflutningsfyrirtækjum og grænmetisbændum og kemur fyrir í frostþurrkara þar sem það fer í gegnum frostþurrkunarferlið.
Með frostþurrkun tekst okkur að varðveita ferskleika hráefnisins og skila bragðinu og næringarefnunum alla leið til neytandans.
Allt að 97% af upprunalegum næringarefnum, lífvirkum efnum, litar- og bragðefnum hráefnisins varðveitist við frostþurrkun auk þess sem geymsluþol eykst um mörg ár.