Skilmálar

Skilmálar

Allar vörur sem til sölu eru í þessari vefverslun eru meðhöndlaðar með frostþurrkun. Það þýðir að allur vökvi hefur verið fjarlægður úr vörunni og sykurinn gæti hafa þanist út (sérstaklega í hlaupi og karamellum). Áferðin getur því að mörgu leyti verið ólík áferð upprunalegu vörunnar. 

Fyrirtækið

FöZZ sælgæti er framleitt af Frostþurrkun ehf (Iceland Freeze Dry), Óseyrarbraut 18, 815 Þorlákshöfn. Vsk.nr. er 14241. 
Hægt er að hafa samband við í gegnum netfangið freezedry@freezedry.is

Afhending vöru

Allar pantanir eru afgreiddar á næstu þremur sólarhringum eftir pöntun en þó er reynt að afgreiða allar pantanir samdægurs. Sé varan ekki til á lager verður haft samband og tilkynnt um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Í boði er að hætta við kaup eða fá staðkvæmdarvöru í stað vörunnar sem ekki er til.

Af öllum pöntunum sem dreift er af póstþjónustu gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar þeirra um afhendingu vörunnar. FöZZ / Frostþurrkun ehf ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef að vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að hún er send til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda.

Verð á vöru

Öll verð í vefverslun eru með inniföldum virðisaukaskatti en sendingarkostnaður bætist við áður en greiðsla fer fram.

Að skila vöru

Veittur er 14 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn því að framvísað sé sölureikningi sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu lagi og í sínum upprunalegu óskemmdu umbúðum þegar henni er skilað. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar.

Gölluð vara

Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingarkostnað sem um ræðir eða endurgreiðum ef þess er krafist. Að öðru leyti vísast til laga um neytendakaup nr. 48/2003 og laga um neytendasamninga. 

Trúnaður

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila. 

Lög og varnarþing

Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Suðurlands

Frostþurrkun ehf  / FöZZ  fer eftir lögum nr. 77/2000 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga.